SKIDAFERD.COM
LA FOLIE DOUCE
Tekið af vef VerdiTravel
Einstaklega fallegt og líflegt hótel staðsett á móti Savoy skíðalyftunni.
Hótelið er byggt á gömlu óðalsetri og er blanda af nýjum arkitektúr í sambland við upprunalegan byggingastíl sem kemur einstaklega vel út.
La Folie Douche Hotel er staðsett á móti Savoy-skíðalyftunni í Chamonix, sú lyfta fer upp að Brévent/Flagere kláfnum. Örstutt er í miðbæinn og göngugötuna frá hótelinu eða um 2 mínútna ganga.
Hægt er að velja um standard herbergi 18fm. (access) eða premium herbergi 20fm. með svölum. Í premium herbergjum eru sloppar, te og kaffi og þeim fylgja sér skápar í skíðageymslunni. Öll herbergin á gististaðnum bjóða upp á útsýni yfir Mont-Blanc, Le Brévent eða Les Aguilles og á hótelinu er upphituð útisundlaug, spa með gufubaði, hammam, nudd, snyrtimeðferðir og jóga- og líkamsrækt.
Aðalveitingastaður hótelsins framreiðir morgunverð og hádegisverð og býður einnig upp á kvöldverðarsýningu alla daga nema sunnudaga. Á veturna er einnig a´la carte veitingastaður, La Piazza, þar sem boðið er upp á létta rétti, þar á meðal pizzur.
Gestir geta fengið sér heita drykki, vín og kokteila með útsýni yfir Mont-Blanc á Janssen Barnum, og á kvöldin eru ýmis konar uppákomur eins og plötusnúðar, lifandi tónlist og önnur skemmtun.
Skíðaleiga er á staðnum, auk tveggja verslana sem selja íþróttabúnað og minjagripi. Eignin er með stórum garði með nokkrum veröndum með útsýni yfir fjöllin. Þar er ýmis afþreying í boði sem fer eftir árstíðum.
Strætó stoppar um 100 m frá hótelinu og gengur allt árið um kring og fer á önnur skíðasvæði
