top of page
dorfstadl2.jpg

DAGUR 1 - 15. MARS
LAUGARDAGUR
KEF - MUC - ST. ANTON

Hinir sex fræknu! Eða jafnvel fleiri?

Þá er komið að því! Strákaferðin er að orðin að veruleika. Viðkomustaðurinn ekki af lakara taginu, skíðaparadísin Ischgl í Tyrol í Austurríki. Heimavöllur skíðageðveikinnar, Aprés ski gleðinnar og kórónuveirunnar.

Við ferðumst til Munchen með Icelandair. Skutla (minibus) sækir okkur á flugvöllinn og flytur okkur beinustu leið til Ischgl. Ferðin tekur að jafnaði um 3,5 - 4 klst. Ekki er gert ráð fyrir stoppi á leiðinni, þannig að ágætt er að vera sæmilega nestaður fyrir ferðina. Við getum þó vafalaust platað bílstjórann til að stoppa einu sinni eða tvisvar á leiðinni til þess að kasta af okkur vatni og fylla á guðsveigar.


Við innritum okkur á hótelið, göngum frá farangri upp á herbergi og drífum okkur í framhaldinu út á Onkel Toms skíðaleiguna að sækja þann búnað sem við þurfum. Þar býðst okkur 15% afsláttur.

Image by Ross Parmly

FERÐADAGUR TIL ST. ANTON

Laugardagur - 15. mars

KEF - MUC   FI 532

Við erun allir bókaðir með flugi FI 532 frá Keflavík til Munchen. Flugtími áætlaður 3 klst og 45 min.

MUC - ST. ANTON AM ARLBERG

Það kemur skutla að sækja okkur á völlinn og ekur okkur beinustu leið til Kappl í næsta nágrenni við Ischgl.
Undir venjulegum kringumstæðum tekur ferðin um 3,5 klst. Við getum óskað eftir því við bílstjóra að stoppa á leiðinni til að ná okkur í hresingu í föstu og fljótandi formi eða til að skila af okkur :) Við bætum honum það upp með þjórfé þegar komið verður á leiðarenda.

CHALET ARLBERGBLICK

Við vonumst til þess að koma á hótelið mill kl. 16 og 17. Það tekur sinn tími að koma sér fyrir, skrá alla inn á herbergi og annað sem því fylgir. Við reynum að vera eins snöggir og kostur er því næsta á dagskrá er að nálgast skíði og annan búnað á skíðaleigunni.

ONKEL TOMS 
SKI HUTTE

Skíði og annar búnaður hefur verið bókaður fyrir hópinn á Onkel Toms Ski Hutte skíðaleigunni sem er í göngufæri frá hótelinu. Það er nóg fyrir okkur að mæta á svæðið og þau sjá um að græja rest.

KVÖLDMATUR

Engar sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar með kvöldmat. Líklega er best að snæða á hótelinu eða einhverjum öðrum góðum stað í nágrenninu.

SPA & HUGGULEGHEIT

Að loknum annasömum degi er tilvalið að skella sér í SPA-ið og slaka á fyrir krefjandi skíðaferð.

HÓTELBARINN EÐA BEINT Í HÁTTINN

Notalegt er að tylla sér á hótelbarinn. Leggja upp næsta dag eða bara lauma sér upp á herbergi í kósýheit.

HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR

uce_air3.jpg

INNRITUN Í FLUG FI 532 KEF- MUC

Hægt er að innrita sig í flugið 24 tímum fyrir brottför. Þeir sem vilja og geta skipuleggja sig saman í bíla til KEF. Við rekumst síðan hvert á annað á LOKSINS, Saga lounge eða á rölti um flugvöllinn..

DSC07979.jpg

Chalet Arlbergblick 

Hótelið okkar er í litlum bæ sem heitir Kappl og er rétt utan við Ischgl. Skíðastrætóinn er um 10 mín á leiðinni og leigubíll tekur enn styttri tíma. Í Kappl er einnig ágætis skíðasvæði sem gaman væri að prófa einn daginn.

onkeltom.jpg

SKÍÐALEIGAN - ONKEL TOM´S SKI HUTTE

Skíðaleigan fær mjög góða umsögn. Leigan er staðsett í næsta nágrenni við hótelið okkar, aðeins í um 3 mín göngufæri. Góður búnaður á fremur hagstæðu verði. Hægt að skipta út búnaði ef hann hentar ekki. Við faúm 15% afslátt af listaverði.

alps2alps.webp

Alps2Alps - frá flugvellinum í fjallið

Alps2Alps þjónustar okkur um skutlu frá flugvellinum og í fjallið. Við höfum skipt við fyrirtækið áður og reynslan jákvæð og góð. Verðið er með því hagstæðasta sem við höfum séð.

©2021 by G&T. MEDIA

bottom of page