SKIDAFERD.COM

DAGUR 2 - 3. MARS
FÖSTUDAGUR
Táp og fjör og frískir menn!
Á fyrsta skíðadegi byrjum við á því að koma okkur upp í miðsvæðið í fjallinu þaðan sem allar leiðir liggja. Við tökum lyftuna A3 Fimbabahn. Við getum vonandi tekið smá rennsli allir saman og prófað græjurnar áður en við skiptum liði. Einhverjir ætla í kennslu á meðan aðrir kynna sér fjallið.
Á skíðasvæðinu eru þrjár þekktar smyglaraleiðir og er hugmyndin að taka silfurhringinn fyrri hluta þessa fyrsta dags. Að honum loknum hittumst við allir aftur við Fimbabahn lyftuna og skíðum saman út daginn.
Ekki er búið að gera serstakar ráðstafanir með mat og drykk, Við látum kylfu ráða kasti.
Í lok dags er stefnan sett á Aprés neðst í fjallinu. Trofana Alm er mjög álitlegur kostur.
Við getum tekið síðustu skíðarútuna heim um kl. 19 eða látið okkur hafa það að skjótast á milli í leigubíl. Verð ca. 30 evrur.

FYRSTI SKÍÐADAGUR
Föstudagurinn - 3. mars
MORGUNMATUR
07:30
Vonandi hafa allir náð sér í góða hvíld. Endurnærðir og tilbúinir í slaginn. Hefjum daginn á morgunverði á hótel Dorfstadl. Gott að mæta tilbúnir í morgunmat, skófla í sig því helsta og drífa sig út í gleðina.
SKÍÐARÚTA
08:15
Þetta er okkar fyrsti dagur í Ischgl. Það vill enginn vera seinn út, Skíðarútan stiooar á ca. 15 mín fresti. Stefnum á að taka hana kl. 8.15 alla leið til Ischgl. Jómfrúarferð í góðra vina hópi niður brekkunar er líklega eitt af þessum Kodak mómentum sem enginn vill missa af. Rennisléttar brautir og stemmningin engu öðru lík.
FYRSTA STOPP
10:15
Við látum engan bíða of lengi eftir fyrsta sopa. Kaffi, kók, sódavatn eða bjór... við dæmum engann. Njótum og eigum dag saman.
SAMEINAÐIR Á NÝ
12:30
Að lokinn kennslu (hjá þeim sem það kjósa) og nokkrum góðum ferðum hjá öllum hinum þá söfnumst við saman og skálum í bjór. Höldum síðan áfram að kanna svæðið og þefa uppi ævintýri.
HÁDEGISVERÐUR
14:00
Við eigum bókað borð fyrir allan hópinn á einum allra skemmtilegasta stað í ZAS. Það er smá trix að átta sig á því hvenig farið er að staðnum. Þess vegna þarf að gefa sér að minnsta kosti hálftíma fyrirvara áður en við eigum að mæta. Við mælum með eftirfarandi leið.....
Og ekki gleyma að kíkja aftur á videó sem við sendum ykkur í gær :)
APRÉ SKI - TROFANA ALM
Stemmningin er hvergi betri en í Trofana Alm. Efst í bænum og beint neðan við brekkuna. Tökum lagið og sjáum hvað síðdegið ber í skauti sér.
16:00
LEIGUBÍLL HEIM
19:00
Líklegast tökum við leigubíl heim. Ferðin kostar um 30 evrur sem skiptist á hópinn.
KVÖLDMATUR OG KÓSÝHEIT
Við getum gripið eitthvað með okkur að borða á leiðinni heim, sest niður á veitingastaðnum á hótelinu eða verið búnir að birgja okkur upp í Spar versluninni í götunni.
19:30
STURLAÐAR STAÐREYNDIR

SVÆÐI B
Áætlað að stoppa um kl. 10.15
Schmittenhöhenbahn - Schnaps-Hans Alm
Schmittenhöhen, Bergstation, 2.000m
Fullkominn staður fyrir fyrstu hressingu í Zell am See. Schnaps-Hans Alm liggur rétt við kirkjuna uppi á toppi. Frábært útsýni yfir skíðasvæðið. Leiðin liggur bara niður á við eftir þetta.

SVÆÐI A
Á ætlað að stoppa um kl. 12.00
This is your Travel Tips Article. Add a full article with helpful travel tips or a short memo with an exciting update regarding you, your business, or your recent promotions. Publishing articles and tips can be a great way to position yourself as an authority in your field. Choose a great image or photo to feature in your post or add a video for extra engagement! Keep it interesting and relevant so that your readers read it through till the very end.

SVÆÐI H
Eigum pantað borð kl. 13.30
This is your Travel Tips Article. Add a full article with helpful travel tips or a short memo with an exciting update regarding you, your business, or your recent promotions. Publishing articles and tips can be a great way to position yourself as an authority in your field. Choose a great image or photo to feature in your post or add a video for extra engagement! Keep it interesting and relevant so that your readers read it through till the very end.

TROFANA ALM
Skíðum okkur niður í bæ um kl. 16.00
GINHOUSE
Dreifaltigkeitsgasse 1
5700 Zell am See
450 mismunandi tegundir af gini í boði á þessum rómaða Aprés Ski stað í miðbæ Zell am See. Þekktur fyrir frábæra kokteila og góða stemmningu. Hér ættu allir að geta fundið drykk við hæfi.
