SKIDAFERD.COM

DAGUR 1 - 22. JAN
LAUGARDAGUR
KEF - MUC - SAALBACH
Ferðadagur í góðra vina hópi.
Loksins, loksins! Það er ekki sérlega oft sem maður skipuleggur frí með eins löngum fyrivara. Í Covidólgusjó getur allt gerst. Líklega erum við flest smá hissa á því að dagurinn sé loks runninn upp.
Við ferðumst til Munchen með Icelandair. Rúta sækir okkur á flugvöllinn og flytur okkur beinustu leið yfir til Saalbach. Gunni & Hulda hitta okkur á flugvellinum og hópurinn því sameinaður. Gunni & Hulda taka að sér að græja drykki, samlokur og snakk fyir hópinn til að hafa á leiðinni. Auk þess verður bjór til sölu í rútunni og að sjálfsögðu er klósett um borð.
Ferðin tekur að jafnaði um 2 klst. en sökum þess að það er skiptidagur í fjallinu getur það vel dregist aðeins. Gerum ráð fyrir 3 - 4 klst í ferðalagið.
Við innritum okkur á hótelið, göngum frá farangri upp á herbergi og drífum okkur í framhaldinu út á Mietski skíðaleiguna að sækja þann búnað sem við þurfum.
Gildandi COVID reglur í Austurríki gera þeim sem eru með fulla bólusetningu og booster fært að koma inn í landið án PCR prófs. Það getur þó breyst með stuttum fyrirvara. Við fylgjumst vel með og tilkynnum um breytingar.

FERÐADAGUR TIL SAALBACH
Laugardagurinn - 22. janúar
KEF - MUC FI 532
07:20 - 12:05
Við erun öll (nema Gunni & Hulda) bókuð með flugi FI 532 frá Keflavík til Munchen. Flugtími áætlaður 3 klst og 45 min.
MUC - SAALBACH
12:30
Það verður engin "helvítis" rúta helur langferðabíll sem sækir okkur á flugvöllinn og ekur okkar beint á hóelið okkar í Saalbach. Undir venjulegum kringumstæðum tekur ferðin um 2 klst. Sökum þess að við ferðumst á laugardegi, þar sem umferð er mun þyngri, má gera ráð fyrir því að ferðin verði allt að 4 klst. Salerni er um borð þannig að það er engin ástæða til að örvænta.
VEITINGAR UM BORÐ
Gunnar Freyr & Hulda Hrönn ætla að vera svo væn að nesta okkur upp fyrir ferðina. Samlokur, snakk og drykkir á línuna. Allt hluti af sameiginlegum kostnaði. Tökum það betur saman síðar þegar fjöldi liggur fyrir.
DRYKKIR UM BORÐ
Auk þess að bjóða uppá sameiginlega drykki þá var búið að semja við rútufyrirtækið að drykkir yrðu til sölu í rútunni. Endilega hafði því peninga við höndina, litlir Evrur seðlar og klink gagnast best.
HOTEL DIE SONNE
16:00
Við vonumst til þess að koma á hótelið mill kl. 15 og 17. Það tekur sinn tími að koma sér fyrir, skrá alla ainn á herbergi og annað sem því fylgir. Við reynum að vera eins snögg og kostur er því næsta á dagskrá er að nálgast skíði og annan búnað.
MIETSKI - LEIGA
17:00
Skíði og annar búnaður hefur verið bókaður fyrir hópinn á Mietski skíðaleigunni sem er í göngufæri frá hótelinu. Mietski.com
Við þrufum að vera komin þangað fyrir kl. 18.
KVÖLDMATUR
18:30
Hópurinn er bókaður saman í mat kl. 18.30 fyrsta kvöldið okkar. Önnur kvöld í ferðinni bókar fólk sig sjálft tíma (skráð í morgunmatnum).
SPA & HUGGULEGHEIT
Að loknum annasömum degi er tilvalið að skella sér í SPA-ið. Tvennskonar SPA í boði og við með frjálsan aðgang. SONNENOASE, innisundlaug, kósýsvæði og útipottur m.a. SONNENhAUS er fullorðins, einstaklega notelegt, kyrrð og ró fyrir allan peninginn og rúmlega það. Njótið vel.
HÓTELBARINN EÐA BEINT Í HÁTTINN
Notalegt er að tylla sér á hótelbarinn. Leggja upp næsta dag eða bara lauma sér upp á herbergi í kúr, tvö ein eða með leynigesti. Hér er allt leyfilegt.