top of page
monkey.jpg

DAGUR 7 - 28. JAN
FÖSTUDAGUR 
SJÖTTI OG SÍÐASTI SKÍÐADAGUR
SVÆÐI B - A - H

Klárum þetta með stæl og "lokum" hringnum

Á fjórða skíðadegi okkar er ætlunin að skíða yfir til Zell am See. Myndarlegt skíðasvæði í næsta stóra bær við okkur. Svæðið hefur er vel þekkt og hefur verið vinsælt með Íslendinga í fjölda ára. Við leggjum af stað fremur snemma þenna dag og höldum hópin að stórum hluta yfir daginn. Hótel skutlan á Die Sonne flytur okkur að lyftu sem við tökum á hæsta punkt Zell am See skíðasvæðisins. Skíðakortin okkar gilda líka á þessu skíðasvæði. Ef fólk fær nóg af brekkunum þá er lítið mál að renna sér niður í bæ, kíkja í búðir, bari eða kaffihús. Við pöntum borð fyrir hópinn á góðum stað í fjallinu og síðan endum við daginn á Apré Ski í miðbæ Zell am See. Við tökum síðan leigubíl yfir til Saalbach um kl. 18.30

swelferkogel.jpg

SJÖTTI SKÍÐADAGUR

Föstudagurinn - 28. janúar

MORGUNMATUR

07:30

Venju samkvæmt tökum við daginn snemma. Þeir sem ætla út með fyrstu skipum mæta snemma í morgunmat. Viðbúið að einhverjir verði nokkuð lúnir eftir The Challenge" en aðrir í betra standi eftir rólegan fimmtudag.

SKUTLA

08:15

Mætum í skutluna á okkar hefðbundna tíma. Hefjum leik í 12er Kögel í fjalli B.

FYRSTA STOPP - B
GENUSS HOCH 12

10:15

Við látum engan bíða of lengi eftir fyrsta sopa. Kaffi, kók, sódavatn eða bjór... við dæmum engan. Njótum og eigum daginn saman. Gerum ráð fyrir að stoppa í um hálftíma þannig að hopurinn sé fyrir víst búinn að safnast saman og til í næstu áskorun.

ANNAÐ STOPP - A
WESTGIPFELHUTTE

Westgippfelhutte stendur á hæsta tindi skíðasvæðisins. Við erum loksins kominn upp á topp. Nú liggur leiðin bara niður á við.

12:00

SIMAL ALM - A

13:15

Hádegisverður dagsins verður tekinn á Simal Alm, frábærum pizzastað í Schattberg Ost. Staðsetur mitt í lengstu brekku skíðasvæðisins. Skammt þar frá fór Ágúst okkar Illugason á hnéin fyrir 2 árum.

Að hádegisverði loknum fikrum við okkur áfram að svæði H þar sem við endum þeannan síðasta skíðadag okkar.

HINTERHAG ALM - EVA´S ALM

Ef Guð og gæfan lofa þá getum við tekið síðasta Aprés Ski þessarar ferðar á barnum hennar Evu. Aprés Ski eins og það gerist best. Algjörlega ógleymanlegt.

16:00

HÓTEL SKUTLAN SÆKIR

Okkar allra besti Bruno brunar eftir okkur þegar við viljum koma okkur heim í notalegheit á Die Sonne.

18:00

KVÖLDMATUR OG KÓSÝHEIT

18:30

Munið að panta matinn á réttum tíma, Gott að miða við kl. 20. Raunhæft að ná í SPA áður, síðan í mat og að sjálfsögðu einn eða jafnvel tvo drykki til að gera upp ferðina. Á morgun býður okkar ferðalag til Munchen, sumir á flugvöllin aðrir í borgina.

VEITINGASTAÐIR OG BARIR

b_zwolferkogel.JPG

SVÆÐI B

Áætlað að stoppa um kl. 10.15

12er Kogel / Zwölfer Nordbhan - Genuss Hoch 12
Zwölferkogel, 1.984 m

Stefnum á fyrstu hressingu mitt í hlíðum Zwölferkogel.

a_schattberg.JPG

SVÆÐI A

Áætlað að stoppa um kl. 12.00

Westgipfelbahn - Westgipfelhutte
Schattberg West 2.096 m

Á hæsta tindi skíðasvæðisins tökum við okkar síðustu hádegishressingu. Það er kalt á toppnum en útsýnið er alveg þess virði.

simal alm 2.jpg

SVÆÐI A

Ekki hægt að panta borð

Schattberg X-press - Simal Alm
Schattberg Ost 2.020 m

Pizzastaðurinn í miðjum hlíðum fjallsins. Eitt lengsta samfellda rennsli í Ölpunum og þó víða væri leitað.

Myndband

h_purndelkopf.JPG

SVÆÐI H

Lokaspretturinn

Hinterhag Alm / Eva´s Alm

Við sláum botninn í ævintýrið okkar með Aprés Ski eins og hann gerist bestur hjá Evu vinkonu okkar. Metum eftir COVID færð hvað við gerum, en stefnum að þessu ævintýri.

bb_sahi_panorama_print.jpg

©2021 by G&T. MEDIA

bottom of page