SKIDAFERD.COM
HEADER TITLE
SKOÐA
THIS IS A TITLE.
THIS IS A TITLE.

1. FEBRÚAR
FIMMTUDAGUR
MEGÈVE/SAINT-GERVAIS
Skíði og lúxus!
Megève/Saint-Gervais svæðið hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár. Það nýtur ört vaxandi vinsælda og ekki að ástæðulausu. Svæðið stendur nokkuð lægra en svæðin sem við skíðum í grennd við Chamonix og Courmayeur. Skíðasvæðið samanstendur af 263 km brekkum sem skiptast í 98 km af bláum, 134 km af rauðum og 31 km af svörtum brekkum. Alls eru 81 lyfta og stór hluti af þeim nýlegur. Hæðarmunur á svæðinu er um 1.500 metrar. Megève/Saint-Gervais hentar hópnum okkar sérlega vel enda eitthvað í boði fyrir alla. Skíðapassinn okkar gildir á svæðinu og til að virkja hann þarf að byrja á því heimsækja miðasöluna (hafi kortið við höndina og greiðslukvittunina í símanum).
Á Megève/Saint-Gervais svæðinu er nauðsynlegt að enda skíðasaginn á La Folie Douce staðnum sem er staðsettur ofarlega á svæðinu.
Við erum að kanna verð á skultu fram og til baka milli Chamonix og Megève/Saint-Gervais. Nánar um það síðar.

THE CHALLENGE
Fimmtudagurinn - 27. janúar
MORGUNMATUR
Dagurinn byrja snemma. Morgunmatur og síðan beint í skíðageymsluna til að koma sér út í tæka tíð.
Ekki mun gefast tími til að stoppa í mat yfir daginn, þannig að við tökum með okkur nesti. Vinir okkar á Die Sonne útbúa eitthvað sem við getum gripið með.
SKUTLA
Við bíðum ekki boðanna. Mætum út strax kl. 8:00 til þess að vera komin af stað um leið og lyftur opna. Hér skiptir hver mínúta máli.
A1
SCHATTBERG
X-PRESS
Við hefjum leik í lyftunni Schattberg X-press. Þangað verðum við mætt tímanlega og stefnum að því að taka fyrsta kláf upp á topp.
Við endum síðan daginn niður svarta brekkur sem liggur niður hlíðina (ef allt gengur að óskum).
FYLGIST MEÐ Á FACEBOOK
Að venju deilum við staðsetningunni okkar á FB chatinu. Þannig geta allir fylgst með stöðunni á þeim sem láta reyna á The Challenge. Nánari tímaviðmið verða færð inn síðar.
KVÖLDMATUR OG KÓSÝHEIT
Kvöldmatur og kósýheit heima á DIe Sonne að vanda.