SKIDAFERD.COM

DAGUR 1
27. JANÚAR
LAUGARDAGUR
KEF -> GVA -> Chamonix
Loksins, loksins! Það er komið að þessu eftir langa bið og niðurtalningu! Við fljúgum til Genf með Play (OG764) frá Keflavík kl. 10:35 og lendum kl. 15:30 að staðartíma í Genf.
Þar bíður okkar rúta sem brunar með okkur á La Folie Douce hótelið í Chamonix. Rútuferðin tekur rétt rúmlega klukkustund og stefnum við á að vera komin á hótelið 17:15.
Við innritum okkur á hótelið, göngum frá farangri upp á herbergi og drífum okkur í framhaldinu út á skíðaleigu sækja þann búnað sem við þurfum.
Hópurinn á svo bókað borð La Petite Cuisine (á hótelinu) kl. 19.00.

FERÐADAGUR TIL CHAMONIX
Laugardagurinn - 27. janúar
KEF - GVA OG-764
10:35 - 15:30
Við fljúgum með Play frá Keflavík (OG-764) til Genf. Flugtími er áætlaður 3 klst og 55 min og lendum við klukkan 15:30 að staðartíma.
GVA - CHAMONIX
16:00
Það verður engin "helvítis" rúta heldur langferðabíll á vegum Verdi sem sækir okkur á flugvöllinn og ekur okkar beint á hótelið okkar í Chamonix. Áætlaður ferða tími 1 klst. Stutt og laggott.
LA FOLIE DOUCHE HOTEL
17:15
Við vonumst til þess að koma á hótelið fljótlega eftir kl. 17. Það tekur sinn tími að koma sér fyrir, skrá alla inn á herbergi og annað sem því fylgir. Við reynum að vera eins snögg og kostur er því næsta á dagskrá er að nálgast skíði og annan búnað.
SKÍÐALEIGA
18:00
Verdi mælir með ChamSport skíaleigunni. Verð á leigunni er fremur hagstæð. 5% afsláttur er í boði með kóðanum VIPS. Nánari upplysingar hér.
KVÖLDMATUR
19:00
Hópurinn á bókað borð kl. 19.00 á veitingastaðnum La Petite cuisine sem er staðsettur á hótelinu okkar. Matseðillinn er hér
HÓTELBARINN EÐA BEINT Í HÁTTINN
Notalegt er að tylla sér á hótelbarinn. Leggja upp næsta dag eða bara lauma sér upp á herbergi í kúr, tvö ein eða með leynigesti. Hér er allt leyfilegt.