top of page

DAGUR 2 - BRÉVENT & FLEGÉRE

DAGUR 1

Le Panoramic.webp

 28. JANÚAR  SUNNUDAGUR 
BRÉVENT & FLEGÉRE

Fyrsti skíðadagur - Magnað útsýni!

Á fyrsta skíðadegi okkar er ætlunin að skíða Brevént & Flegére, sem er sólríkt svæði í dalnum sem snýr til suðurs og er næst miðbænum.  Brévent & Flegere er okkar heimasvæði þar sem við getum rennt okkur beint í skíðalyftu frá La Folie Douce hótelinu.

Víðáttumikið útsýnið á svæðinu er vægast sagt stórkostlegt þar sem horft er yfir til hæsta fjalls Evrópu, Mont Blanc.

Við skíðum fyrir hádegi í Brevént og tökum lunch á le Panoramic í hádeginu, en staðurinn er á toppi Brévent í 2.5km hæð.  Við skíðum svo þaðan yfir til Flegére og tökum seinni hluta dagsins þar.

brevent_cable.png

FYRSTI SKÍÐADAGUR
BRÉVENT & FLEGÉRE

Sunnudagur - 28. janúar

MORGUNMATUR

07:30

Vonandi hafa allir náð sér í góða hvíld. Endurnærð og tilbúin í slaginn hitum við upp með morgunmat að hætti La Folie Douce.  Eftir morgunnmat er svo að græja sig í skíðagallann og smella sér í skíðaskóna því fyrsti skíðadagurinn er að hefjast.

SKÍÐUM BRÉVENT

08:30

Þetta er okkar fyrsti dagur í Chamonix. Það vill enginn vera seinn út.  Skíðalyfturnar opna kl. 8.50 og því gott að mæta tímanlega og virkja skíðapassann sinn og sleppa við biðraðir.  Við rennum okkur af stað beint af hótelinu og að Savoy lyftunni. Jómfrúarferð í góðra vina hópi niður brekkunar er líklega eitt af þessum Kodak mómentum sem enginn vill missa af.

HRESSING

10:15

Við látum engan bíða of lengi eftir fyrsta sopa. Kaffi, kók, sódavatn eða bjór... við dæmum engan. Njótum og eigum daginn saman. Gerum ráð fyrir að stoppa í um hálftíma á Plan Praz svæðinu í Brévent.

HÁDEGISMATUR

12:30

Hádegismatur á Le Panoramic á toppi Brévent í 2.525m hæð. Njótum einstaks ústýnis yfir Chamonix Mont Blanc og dekrum bragðlaukana.

SKÍÐUM FLÉGERE

13:15

Færum okkur yfir á Flegére svæðið.  Þeir sem treysta sér til skíða frá Le Panoramic niður Charles Bozon brekkuna (svört) á meðan aðrir taka kláfinn niður í Plan Praz þar sem meira er um bláar og grænar brekkur.  Skíðum öll saman frá Plan Praz yfir til Flegére. 
Síðasti kláfur niður fer kl. 16:30 - flestir  taka kláfinn niður í bæ þar sem eingöngu svartar brekkur liggja í bæinn.

APRÉS SKI

17:00

Tökum aprés ski á hótel og ræðum upplifun dagsins og látum okkur hlakka til næsta skíðadags.

SLÖKUN

18:00

Náum okkur aðeins niður í spa-inu á hótelinu og mætum svo endurnærð í kvöldmat á hótelinu eða í miðbæ Chamonix

KVÖLDMATUR OG KÓSÝHEIT

19:30

Mælum með rölti um miðbæinn og kvöldverði á einhverjum af ótalmörgum veitingastöðum í miðbæ Chamonix.  Þeir sem vilja halda fjörinu gangandi fram á nótt geta gert það hér í miðbænum eða á næturklúbbnum á hótelinu - við mælum auðvitað með því að allir mæti ferskir í skíðadag númer 2.

HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR

brevent_kort.jpg

BREVÉNT

Við hefjum leik í Brévent hluta fjallsins. Það er svæðið sem liggur beint upp af hótelinu okkar. Ef nægur snjór er í bænum þá er hægt að taka lyftu beint utan við hótelið okkar. Annars er þetta stutt rölt eða strætóferð að Plan Praz kláfnum. Mjög þægilegar byrjendabekkur eru við hótelið og einnig á Brévent svæðinu. Svæðið er fjölbreytt og hentar öllum getustigum. Flestar brautir tengjast á miðju svæðinu þannig að auðvelt er að skipta upp hópnum en samt að vera öll á „sama stað“. Stefnan er tekin á hádegismat um kl. 12.30 á Le Panoramic á toppi Brévent í 2.525m hæð. Eftir hádegismat færum við okkur um set og yfir til Flégère.

flegere_kort.jpg

FLÉGÈRE

Flégère svæðið liggur austar í fjallinu. Liaison kláfurinn tengir Brévent og Flégère saman. Svæðið samanstendur af fjölbreyttum brekkum við allra hæfi, grænar, bláar, rauðar og svartar. Rétt eins og í Brévent þá tengjast flestar brautir miðsvæðis og því auðvelt að skipta upp hópnum ef áhugi er fyrir því. Um kl. 16 þarf að huga að því færa sig aftur yfir til Brévent til að taka kláfinn niður. Einnig er hægt að skíða alla leið niður í bæ en einungis eru svartar brekkur þá leið. Það fer einnig eftir snjómagni hvort þær leiðir eru opnar.

skidaskoli.jpg

Við mælum hiklaust með því að fara í skíðakennslu. Hægt er að velja um einkatíma, hópatíma eða námskeið. Mikilvægt er að ná góðum grunni til að njóta ferðarinnar sem best. Smellið á tengilinn hér að ofan til að fá upplýsingar um skíðakennslu o.fl. í Chamonix.

ski-apres.gif

APRÉ SKI Á LA FOLIE DOUCE

Við endum skíðadaginn okkar að sjálfsög á Apré´ski. Að þessu sinni komum við okkur fyrir á útibarnum á hótelinu okkar Le Folie Douce.

Brevent-Flegere_pistemap.jpeg

DAGUR 1

©2021 by G&T. MEDIA

bottom of page