SKIDAFERD.COM

1. FEBRÚAR
FIMMTUDAGUR
MEGÈVE/SAINT-GERVAIS
Skíði og lúxus!
Megève/Saint-Gervais svæðið hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár. Það nýtur ört vaxandi vinsælda og ekki að ástæðulausu. Svæðið stendur nokkuð lægra en svæðin sem við skíðum í grennd við Chamonix og Courmayeur. Skíðasvæðið samanstendur af 263 km brekkum sem skiptast í 98 km af bláum, 134 km af rauðum og 31 km af svörtum brekkum. Alls eru 81 lyfta og stór hluti af þeim nýlegur. Hæðarmunur á svæðinu er um 1.500 metrar. Megève/Saint-Gervais hentar hópnum okkar sérlega vel enda eitthvað í boði fyrir alla. Skíðapassinn okkar gildir á svæðinu og til að virkja hann þarf að byrja á því heimsækja miðasöluna (hafi kortið við höndina og greiðslukvittunina í símanum).
Á Megève/Saint-Gervais svæðinu er nauðsynlegt að enda skíðasaginn á La Folie Douce staðnum sem er staðsettur ofarlega á svæðinu.
Við erum að kanna verð á skultu fram og til baka milli Chamonix og Megève/Saint-Gervais. Nánar um það síðar.

MEGÈVE/SAINT-GERVAIS
Fimmtudagurinn - 1. febrúar
MORGUNMATUR
Dagurinn byrja snemma. Morgunmatur og síðan beint í skíðageymsluna til að koma sér út í tæka tíð.
SKUTLA
Við erum að skoða skutlu til Megeve þar sem ætlunin er að verja þessum næstsíðasta skíðadegi. Nánar um skutluna síðar.
MEGEVA & SAINT-GERVAIS
Rómað skíðasvæði í miklum og örum vexti. Brekkur við allra hæfi í fallegu skógivöxnu umhverfi.
FYLGIST MEÐ Á FACEBOOK
Að venju deilum við staðsetningunni okkar á FB chatinu. Þannig geta allir fylgst með stöðunni. Frekari upplýsingar þegar nær dregur.
KVÖLDMATUR OG KÓSÝHEIT
Kvöldmatur og kósýheit heima á DIe Sonne að vanda.
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR
LA FOLIE DOUCE - MEGEVE

La Folie Douce er keðja skemmtistaða í frönsku ölpunum. Hótelið okkar er eina hótelið í keðjunni. Staðirnir eru þekktir fyrir geggjaða stemningu, glamúr og glans. Alls ekki víst að þetta klikki. Við endum daginn okkar á La Folie Douce efst á Megeve svæðinu. Skíðum okkur síðan niður fjallið og tökum skutlu/leigubíl heim.
