top of page

DAGUR 5  

AIGUILLE DU MIDI & 

FRJÁLS SKÍÐADAGUR

DAGUR 4

HEIM

DAGUR 6

aiguille_du_midi_1.jpg

31. JANÚAR 

MIÐVIKUDAGUR

AIGUILLE DU MIDI & 

FRJÁLS SKÍÐADAGUR

Einstök upplifun & óviðjafnanlegt útsýni!

Á fimmta degi er skipulag með aðeins öðrum hætti en fyrri daga. Ætlunin er að heimsækja Aiguille du Midi Það er fátt sem “toppar” þessa upplifun.  Kláfferjan til Aiguille du Midi er hæsta lóðrétta hækkun kláfferju í heimi, eða 2.807m (frá 1.035m í 3.842m).  Fæst okkar munu nokkurn tímann aftur komast í slíkahæð með fast land undir fótum sér og útsýnið er einfaldlega stórkostlegt.

Nafn fjallsins Aiguille du Midi  merkir “hádegisnálin” og kemur til vegna þess að sólin er beint yfir tindinum á hádegi þegar horft er til hans frá Chamonix og stendur hann í 3.842m hæð yfir sjávarmáli.
Á toppi Aiguille du Midi fáum við óhindrað 360° útsýni yfir frönsku, svissnesku og ítölsku alpana, sem er vægast sagt mögnuð upplifun sem seint mun gleymast.  Fyrir hugaða er í boði að stíga í “tómarúmið” sem er glerbúr með um 1.000m metra fallhæð undir fótum þér!

Heildartími í ferð upp Aiguille du Midi  er 2-3 klukkustundir en fer þó eftir fjölda á svæðinu.  Mælt er með að fara vel klæddur, með sólgleraugu og sólarvörn. Þar sem súrefnismagn er minna á toppnum en við erum vön er mælt með því að drekka vel af vatni áður en lagt er af stað.  Fyrsta ferð fer klukkan 08:10 að morgni og síðast ferð niður er kl. 16.30

Í boði er að fara í 4D bíóferð um Mont Blanc svæðið - virðist vera mini “Flyover Iceland” upplifun og er staðsett við upphafspunkt Aguille Du Midi kláfsins.  Ferðin tekur 12 mínútur.og er innifalið í Mont Blanc Unlimited skíðapassanum.


Fyrir lengra komna er í boði að skíða hina margrómuðu Valle Blanche leið sem er 24 kílómetra utanbrautarleið frá Aguille du midi niður til Chamonix - lengsta utanbrautar skíðaleið í heimi sem aðgengileg er með skíðalyftu.


Ferð í Aiguille du Midi er innifalin í Mont Blanc Unlimited skíðapassanum.

Tilvalið er að skíða hluta dags eða taka daginn í rölt um bæinn í Chamonix, eiga notalega stund QC Terme eða hvað eina annað sem hugurinn girnist.

aiguille_du_midi_2.jpg

FJÓRÐI SKÍÐADAGUR
AIGUILLE DU MIDI

Miðvikudagur - 31. janúar

MORGUNMATUR

Morgunmatur á hótelinu er í boði milli kl. 7 og 10 alla virka morgna.  Þennan daginn ertilvalið að brjóta upp skipulagið og hafa allt eftir eigin höfði.

AIGUILLE DE MIDI

Aiguille de Midi er án nokkurs vafa einn af þeim stöðum sem maður verður að skoða þegar komið er til Chamonix. Þekktasta einstaka kennileiti svæðisns. Kláfurinn ber mann í ótrúlega hæð og ústýnið er engu öðru líkt. Muna að bóka í kláfinn.

ROSE DU PONT

Bleiki barinn eða Rose du Pont er við kanalinn í hjarta miðbæjarins.  Glæsilegur staður sem mælt er með að kíkja á. Við eigum pantað borð í drykk fyrir hópinn kl. 17. Möguleiki er á að sitja lengur og snæða á staðnum í framhaldinu.

KVÖLDMATUR OG KÓSÝHEIT EÐA VILLT OG TRYLLT PARÝ

Kvöldið er ykkar

HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR

aiguille_du_midi_5.jpg

AIGUILLE DE MIDI

Hádegisnálin

Aiguille du Midi er gerð góð skil hér efst á síðunni. Mikilvægt að muna að bóka sig í kláfinn. Getum skoðað að taka hópferð ef áhugi er fyrir hendi.

rose.jpg

ROSE DU PONT

Eigum pantað borð í drykk kl. 17

Skemmtilegur staður í hjarta miðbæjarins. Áhugasamir geta setið áfram í mat. Hægt að kynna sér betur á:

Heimasíðu Rose du Pont

TripAdvisor

DAGUR 4

HEIM

DAGUR 6

©2021 by G&T. MEDIA

bottom of page