SKIDAFERD.COM

29, JANÚAR
MÁNUDAGUR
LES HOUCHES
Rólegheit og rómantík eða hvað?
Á okkar öðrum skíðadegi er ætlunin að skíða á Les Houches svæðinu. Svæðið er í um 10 mín fjarlægð frá hótelinu okkar. Við stefnum á að taka skíðastrætó þessa leið og er fargjaldið innifalið í lyftupassanum. Við hefjum leik við Les Houches - Bellevue lyftuna sem ber okkur upp á topp á svæðinu. Les Houches svæðið hentar einkar vel fyrir hópinn. Brekkur við allra hæfi í fallegar og skógi vaxnar skíðabrekkur, grænar, bláar, rauðar og svartar.
Les Houches svæðið er samtals 55 km að lengd, þar af eru 25 km af bláum brekkum, 25 km af rauðum brekkum og 5 km af svörtum brekkum. Grænar brekkur eru taldar með þeim bláu í þessum tölum. Á svæðinu eru 15 lyftur.
Lengsta brekka á svæðinu er 4 km að lengd, með 900 metra lækkun og heitir Prarion-Bellevue.
Erfiðasta brekkan á svæðinu er 2,2 km að lengd, með 680 metra lækkun og heitir Kandahar. Hún er ein af keppnisbrekkunum í heimsmeistaramótinu í svigi. Keppnin í ár verður einmitt haldin 2. - 4. febrúar.

ANNAR SKÍÐADAGUR
LES HOUCHES
Mánudagur - 29. janúar
MORGUNMATUR
07:30 - 08:00
Það borgar sig að vera fremur fyrr en síðar á ferðinni. Stór dagur framundan og að mörgu að hyggja. Skemmtilegast er að fylgja hópnum og því best að koma sér snemma á fætur, nærast vel og vera tilbúin/n í daginn.
SKUTLA
08:15
Tökum rútu / Taxa til Les Houches sem er í 10 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu okkar
FYRSTA STOPP Í LES HOUCHES
10:30
Við látum engan bíða of lengi eftir fyrsta sopa. Kaffi, kók, sódavatn eða bjór... við dæmum engan. Njótum og eigum daginn saman. Gerum ráð fyrir að stoppa í um hálftíma þannig að hopurinn sé fyrir víst búinn að safnast saman og til í næstu áskorun.
HÁDEGISMATUR Í LES HOUCHES
Nærum okkur og njótum veitinga. Staðsetning kynnt síðar.
12:30 - 13:30
DRYKKUR
15:00
Það má alls ekki líða of langt á milli þess að við tökum okkur góða pásu. Félagsskapurinn er númer 1, 2 og 3. Njótum einstaks ústýnis yfir Chamonix frá Les Houches. Hver staður er "picture perfect".
TAXI HEIM Á LA FOLIE DOUCE
Tökum leigubíl eða skutlu til baka heim á hótelið þar sem við höldum áfram að njóta. Nánar síðar.
17:00
MBC
19:00
Við eigum pantað borð fyrir hópinn á MBC Chamonix Microbrewery. Huggulegt micro brewery í Chamonix. Stutt frá hótelinu okkar. Vængir, hamborgarar og rif í bland við annað góðgæti.
ZZZZ...
??':??
Sjáum hvernig kvöldinu vindur fram. Allir að eigin fosrendum að vanda.
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR

LES HOUCHES
Fyrsti drykkur eins fljótt og auðið er.
Síðbúinn hádegisverður.
Við höfum ekki gert sérstakar ráðstafanir með veitingastaði eða bari í fjallinu. Fjölbreytt úrval er af stöðum á Les Houches svæðiinu. Það er í raun sama hvaða leið er vain niður úrvalið er nóg. Efst í fjallinu eru einnig barir og veitingastaðir. Mælum með TripAdvisor og Google til að kynna sér málin betur.

MBC - MICRO BRASSERIE DE CHAMONIX
Eigum pantað borð kl. 19.30
Huggulegt micro brwery skammt frá hótelinu okkar. Allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fær ágæta umsögn á TripAdvisor.
Á mánudögum er tilboð á vængjum og þeir því á 50% afslætti.
