top of page

DAGUR 4 - COURMAYEUR

DAGUR 3

HEIM

DAGUR 5

comprensorio_cmbf_ph-lorenzo-belfrond_LNZ_4059.jpg

30. JANÚAR

ÞRIÐJUDAGUR

COURMAYEUR

Ítalía - 80´s / 90´s / Retro

Á þriðja skíðadegi bíða okkar mikil ævintýri. Við ætlum okkur að leggja land undir fót og færa okkur yfir til Ítalíu og njóta þess að sjá Mont Blanc frá sjónarhorni Ítala. Við tökum rútu yfir til Courmayeur og eigum daginn þeim megin. 


Skíðasvæðið er skemmtilegt og hentar hópnum ágætlega. Hægt er að komast um stóran hluta svæðisins á bláum brautum. Rauðar brekkur eru ríflega helmingur svæðisins og því tilvalið að skora sjálfan sig á hólm og taka næsta skref. 


Við þurfum að koma okkur snemma af stað og taka rútuna yfir kl. 8.30, fyrir þá sem vilja dvelja lengur í rúminu eða kjósa að fara seinna af stað þá er önnur ferð kl. 9.30. Heimferð er síðan í boði kl. 16.15 & 17.30. Mælt er með því að bóka í rútuna. Ferðin fram og til baka kostar 15 evrur gegn framvísun MBU passans. 


Munið að hafa vegabréfið með í för.


Courmayeur svæðið er samtals 42 km,að lengd, þar af eru 16 km af bláum brekkum, 22 km af rauðum brekkum og 4 km af svörtum brekkum. Á svæðinu er 18 lyftur af öllum gerðum.


Síðast en ekki síst er vert að taka það fram að þetta er ÞEMADAGUR!!!

courm2.jpg

ÞRIÐJI SKÍÐADAGUR
COURMAYEUR

Þriðjudagur - 30. janúar

MORGUNMATUR

Það borgar sig að vera fremur fyrr en síðar á ferðinni. Stór dagur framundan og að mörgu að hyggja. Skemmtilegast er að fylgja hópnum og því best að koma sér snemma á fætur, nærast vel og vera tilbúin/n í daginn.

STRÆTÓ

Við sfefnum að því að taka strætó milli Chamonix og Courmayeur. Hægt er að velja um brottfarartíma kl. 8.30 og 9.30. Heimferð yrði síðan kl. 16.15 eða 17.30 eftir því hvað fólk kýs. Það þarf að bóka sérstaklega í strætóinn fram og til baka. Ferðin kostar 15 evrur. Muna að hafa vegabréfið með í för. Kortið okkar gildir á Courmayeur svæðinu en það þarf að virkja sérstaklega í miðasölu þegar þangað er komið.

HRESSING

Það má alls ekki líða of langt á milli þess að við tökum okkur góða pásu. Félagsskapurinn er númer 1, 2 og 3. Finnum huggulegan stað/staði í minni eða stærri hóp.

HÁDEGISMATUR Í COURMAYEUR

Við finnum góðan stað fyrir hádegismat að hætti Ítala. Pizza eða annað góðgæti. Tölum okkur saman á Chatinu.

APRÉ SKI

Skíðum okkur niður svæðið í Courmayeur. Finnum góðan stað í Apré þangað til við tökum strætóinn aftur "heim" til Chamonix.

STRÆTÓ TIL CHAM

Hægt er að velja um tvo mismunandi brottfaratíma til baka. Mæli með að fólk taki sér tíma og bóki seinni vagninn. Þetta er þó allt undir ykkur komið. Muna að það þarf að bóka ferðina til að vera öruggur um sæti.

KVÖLDMATUR OG KÓSÝHEIT

Engar sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar með stað fyrir hópinn þetta kvöld. Hver á sínum vegum eða í hóp við aðra. Þetta er í ykkar höndum.

HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR

buscourm.jpg

STRÆTÓ TIL COURMAYEUR

Brottför kl. 8.30 eða kl. 9.30

Besta leiðin til  Courmayeur er strætó sem gengur frá Chamonix Sud og gegnum göngin til Courmayeur. Það þarf að bóka sérstaklega í vagninn. Mælum með að bóka vagninn kl. 8.30 til Courmayeur og kl. 17.30 til baka.


Bókun

Tímatafla

Frekari upplýsingar

Duffle Bag

VEITINGASTAÐIR OG BARIR

Allar hugmyndir vel þegnar

Við höfum ekki bókað fyrir hópinn á svæðinu. Skoðum það betur og ef við dettum inn á eitthvað mjög spennandi þá tökum við stöðuna. Annars er alltaf góð  "regla" að láta vita á chatinu ef við dettum niður á eitthvað spennandi.

courmayeur_kort.jpg

DAGUR 3

HEIM

DAGUR 5

©2021 by G&T. MEDIA

bottom of page